Norska ríkisstjórnin hóf þetta ungmennaverkefni haustið 2025 til að reyna nýjar lausnir fyrir ungt fólk sem hvorki er í námi né atvinnu. Verkefnið er nú í gangi á sjö staðbundnum skrifstofum norsku Vinnumálastofnuninni (Nav er norska vinnumála- og tryggingastofnunin). Í Noregi eru Nav-skrifstofur í öllum sveitarfélögum og borgum. Þær bjóða upp á atvinnu- og velferðarþjónustu í samstarfi við ríki og sveitarfélög.
Ungu þátttakendurnir njóta fjárhagslegs öryggis á meðan þeir fylgja einstaklingsmiðuðu fullu námi. Starfsemin felur í sér atvinnuleit, starfsþjálfun, nám og einstaklingsbundna eftirfylgni.
Lykilatriði þessa verkefnis er að þátttaka og tekjuöryggi séu ekki tengd sjúkdómum. Með öðrum orðum, þeir sem taka þátt þurfa ekki að hafa skjalfest heilsufarsvandamál til að geta tekið þátt og fengið fjárhagslegan stuðning.
Markmiðið er að kanna hvort samsetning einstaklingsmiðaðra verkefna, stíf eftirfylgni og öðruvísi fjárhagsstuðningur geti hjálpað fleiri ungmennum að ná varanlegri fótfestu á vinnumarkaði eða í námi. Með þessu er verkefninu ætlað að fyrirbyggja félagslega einangrun og draga úr þörf fyrir heilsu- og örorkutengdar bætur til lengri tíma litið.
– Það er gott að verkefnið fyrir ungt fólk hafi farið svona vel af stað. Nærri 700 ungmenni, sem af ýmsum ástæðum höfðu ekki komist út á vinnumarkaðinn, hafa nú fengið tækifæri til að taka þátt í starfsemi á vegum verkefnisins,“ segir Kjersti Stenseng, atvinnumála- og inngildingarráðherra. Í greiningunni er lögð áhersla á mikilvægi sérsniðinna aðgerða og samstarfs milli ólíkra þjónustu- og hagsmunaaðila.
Skoða má norska verkefnið fyrir ungt fólk í ljósi þessarar áskorunar. Í stað þess að heilsufarsvandamál séu forsenda fyrir fjárhagslegu öryggi og stuðningsþjónustu, er verið að prófa líkan þar sem virkni, starfsreynsla, nám og einstaklingsbundinn stuðningur eru í forgrunni.
Í norsku verkefni er leitað nýrra leiða at og náms
Norsk stjórnvalda telja að um 100.000 ungmenni í Noregi séu hvorki í vinnu né námi. Á sama tíma skortir Norðmenn – líkt og aðrar Norðurlandaþjóðir – vinnuafl og hæfni.
Hjá NAV-starfsstöðvunum í Arendal, Kristiansand, Sandefjord, Skien, Porsgrunn, Bergen-suður og Bergen-vestur er verkefnið fyrir ungt fólk nú unnið til reynslu.
Tilraunaverkefnið verður metið. Innan fjögurra ára munu stjórnvöld taka ákvörðun um hvort verkefnið verði víkkað út til annarra hluta landsins.
Jaðarsett ungt fólks – NEET-hópurinn
Ungmenni sem eru hvorki í vinnu né námi eru oft kölluð NEET (skammstöfun fyrir “Not in Employment, Education or Training”).
Hluti af norrænni áskorun
Norska verefnið snýst um málefni sem eru lykilatriði í starfi Norræna samstarfsvettvangsins um símenntun (NLL) og varðar ungt fólk utan vinnumarkaðar og menntakerfis. NLL hefur hrint í framkvæmd þriggja ára samstarfsverkefni sem beinist að NEET með færniþróun og inngildingu á Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum.
Starfið varpar ljósi á bæði hvað er líkt og ólíkt á milli þessara þriggja sjálfstjórnarsvæða. Í Færeyjum benda hagsmunaaðilar sem fjalla um jaðarsetningu ungmenna á þörfina fyrir nánara samstarf milli ýmissa þjónustuaðila; meginreglan um „eina leið inn“ er lykilatriði hér.
Mikilvægt er að tryggja að ungt fólk þurfi ekki sjálft að leita til margra stofnana til að fá aðstoð. Á Grænlandi leggja yfirvöld áherslu á að „NEET-stöðuna“ beri að skilja sem aðstæður sem ungt fólk lendir í, frekar en að vera tengd ákveðinni tegund einstaklinga. Skilvirk leiðsögn, staðbundin tengslanet og sveigjanlegar leiðir til menntunar og atvinnu eru nefnd sem lykilaðgerðir fyrir fólk í „NEET-stöðu“. Á Álandseyjum er áskorunin sú að löggjöf um ungmenni er ekki nægilega aðlöguð til að auðvelda fræðslustarfsemi sem beinist að ungu fólki utan vinnumarkaðar eða og menntakerfis.
Ýmsir þættir í þeirri nálgun sem viðhafðar eru á þessum þremur sjálfsstjórnarsvæðum eiga sér hliðstæðu í norska ungmennaverkefninu. Lykilatriði er að ýmsar ástæður geta verið fyrir því að ungt fólk sé utan vinnumarkaðar og menntakerfis, og því þarf að sníða eftirfylgni að þörfum hvers og eins. Sérkenni norska tilraunaverkefnisins felst í tengingunni sem mynduð er á milli fjárhagslegs öryggis, stuðnings við eftirfylgni og heilsutengdra áskorana. Reynslan frá Noregi, Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum getur þannig skapað víðtækari þekkingargrundvöll fyrir norræna umræðu um hvernig ungt fólk geti myndað varanlegri tengingu við nám og atvinnulíf.
Nánari upplýsingar hér:
Verkefni norsku ríkisstjórnarinnar (á norsku): Nálægt 700 unglingar eru þátttakendur í verkefni ríkisstjórnarninnar fyrir ungt fólk – vefurinn: regjeringen.no (juli 2026)
Skýrsla frá Norrænu ráðherranefndinni: Increasing employment among vulnerable groups (2025)
Um starf NLLs með NEETs (á dönsku) : NEET, kompetenceudvikling og inklusion i Åland, Grønland og Færøerne – NLL (2025-2030)

