Lýðskólar koma ungmennum sem eru hvorki í námi né vinnu til hjálpar

Nyhed

Í Svíþjóð eru yfir 130.000 ungmenni sem hvorki vinna né stunda nám. Til að veita þessum ungmennum aðstoð hefur ESF-verkefninu FolkisYoung verið hrundið af stað, það mun veita þeim leiðsögn í átt að vinnu eða frekara námi.

Sverige
Anna Nygård
Anna Nygård,
Anna Nygård
Ung man i grå huvtröja med hörlurar runt halsen ser fundersam ut på en gata.
Lýðskólar koma ungmennum sem eru hvorki í námi né vinnu til hjálpar

Verkefnið er rekið af Alþýðufræðsluráðinu (se. Folkbildningsrådet) í samstarfi við átta lýðskóla. Verkefnið býður upp á viðbótarnám í tungumálum í umhverfi sem er aðlagað að ungu fólki. Markmiðið er að veita þátttakendum þekkingu, sjálfstraust og von um bjarta framtíð, með stuðningi umsjónarmanna sem hlúa að lífsaðstæðum þátttakenda.

Lýðskólinn Skurup och Fridhem í Malmö býður upp á einstaklingsmiðað nám, sem hefur þegar sýnt jákvæðan  árangur, með stuðning einkakennara og leið aftur til menntunar.

– Þegar þau byrja hjá okkur eru þau frekar óákveðin og bera ekki mikið traust til neins skólakerfis. Meðal þeirra eru mörg sem eiga við geðheilbrigðis- og félagsleg vandamál að stríða, segir Angela, kennari við skólann.

Nokkrir þátttakendur hafa náð umtalsverðum framförum, eins og ungur maður sem er nú að læra áfram eftir að hafa fengið stuðning frá verkefninu. Áður hafði hann afar takmarkaðan áhuga, nú situr hann fremst í kennslustofunni.

– Áður þorði ég ekki að lesa hátt fyrir framan bekkinn. Ég varð stressaður. En nú líður mér eins og ég sé á heimavelli, segir hann.

Nánari upplýsingar á sænsku

Få NLL’s nyhedsbrev

Med NLLs nyhedsbrev får du: Nyeste viden fra NLL som fx policy briefs og rapporter, vigtige nyheder fra de nordiske lande, aktuelle artikler, der går i dybden med feltet på tværs af sektorer, temaer og geografi samt overblik over kommende konferencer, seminarer og events.

Looking for something in particular?

Or do you have a question about NLL and Lifelong Learning?
Try our new customized NLL AI Assistant.

Try it here
Søg på NLL