Í dag er æðra starfsnám, sem í Noregi er oft kallað fagskólanám, á þrepi 5 í norska hæfnirammanum um ævilangt nám (NKR). Nú eiga fagskólarnir einnig að geta boðið upp á nám á þrepi 6 og 7 í hæfnirammanum.
Ástæðan er sú að atvinnulífið gerir nýjar og flóknari kröfur um hæfni. Margt iðnmenntað fólk og aðrir á vinnumarkaði þurfa því tækifæri til að byggja ofan á þá þekkingu sem þeir búa þegar yfir – án þess sækja háskóla.
Tvær námsleiðir hlið við hlið
Nýja líkaninu má á einfaldan hátt lýsa sem tveimur námsleiðum, eða „stoðum“, hvor við hlið annarrar.
Önnur er starfsmenntatengd og nátengd starfi og nær yfir æðra starfsnám. Hin felst í námi í háskóla.
Í framtíðinni eiga báðar að geta boðið upp á nám á 6. og 7. þrepi hæfnirammans. Það þýðir til dæmis að starfsnám getur verið á sama þrepi og bakkalárnám án þess að það sé þar með bakkalárgráða. Á sama hátt getur starfsnám verið á 7. þrepi án þess að vera meistaragráða. Fram hafa komið tillögur um að gráðurnar verði kallaðar „starfsbakkalár“ og „starfsmeistari“. Hins vegar hefur ekki verið ákveðið hvað þetta starfsnám á 6. og 7. þrepi eigi hugsanlega að heita.
Sama þrep þýðir í þessu samhengi ekki sams konar nám. Þrepið segir fyrst og fremst til um hversu þróuð hæfnin er – hvað einstaklingur á að vita, skilja og geta gert að námi loknu.
Námsleiðirnar eiga áfram að hafa ólíkar áherslur og sérkenni. Æðra starfsnám á að vera nátengt atvinnulífinu og byggja á hagnýtri og starfstengdri hæfni, en háskólanám hefur aðrar faglegar og fræðilegar áherslur.
Tækifæri til að byggja ofan á starfshæfnina
Breytingin gerir fagskólunum kleift að þróa framhaldsnám á hærra stigi þegar atvinnulífið þarf á því að halda.
Fyrir einstakling með fagbréf getur það til dæmis þýtt að hægt verði að byggja ofan á fagbréfið frá fagskólanámi á 5. þrepi yfir í starfsmenntanám á 6. og 7. þrepi.
Þannig geta fleiri haldið áfram að efla hæfni sína innan starfsnáms og hagnýtrar námsleiðar alla starfsævina.
Staðan í öðrum norrænum löndum
Á Norðurlöndunum eru ólíkar leiðir við að skipuleggja hagnýtt nám á hærra stigi sem tengist atvinnulífinu. Í Svíþjóð er boðið upp á hagnýtt starfsmiðað nám á 6. þrepi, en í Danmörku og Finnlandi er fagmiðað og atvinnulífstengt nám á 6. og 7. þrepi innan háskólastigsins. Norska líkanið sker sig úr að því leyti að þar verður þróuð sérstök starfsmenntastoð með prófgráðum bæði á 6. og 7. þrepi.
Nýjar lýsingar á þrepunum verða teknar upp í Noregi
Til að koma nýju skipulagi á þarf að lýsa á skýran hátt hvað einkennir hæfni á hinum ýmsu þrepum.
Norsku stofnuninni um æðri menntun og hæfni (HK-dir) hefur verið falið það verkefni af norska menntamálaráðuneytinu að útbúa tillögur að nýjum og endurskoðuðum þrepalýsingum fyrir NKR-þrep 5–8. Meðal annars á að þróa nýjar lýsingar fyrir starfsmenntastoðina á 6. og 7. þrepi og endurskoða á lýsinguna á 5. Þrepi. Jafnframt á að fara yfir þrepalýsingar fyrir háskólamenntun á þrepum 6–8.
HK-dir á að skila tillögunum til menntamálaráðuneytisins eigi síðar en 1. nóvember 2026.
Markmiðið með breytingunum er að gera menntakerfið betur í stakk búið til að mæta þörfum atvinnulífsins fyrir hæft starfsfólk – og gefa fleirum tækifæri til að læra og byggja ofan á hæfni sína alla starfsævina.
Heimildir á norsku:

