26/01/2026

Danmark

Lýðræði, Stafræn hæfni

3 min.

Undir formennsku Dana og Færeyinga verður lögð áhersla á vellíðan og norrænar rætur

Um áramótin tóku Danir og Færeyingar við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Þá stöðu var ákveðið að nýta til að forgangsraða verkefnum í þágu vellíðan ungs fólks og norrænna róta árið 2026.

To ungdommer står sammen og ser på en mobiltelefon i dempet belysning.

Undir formennsku Dana og Færeyinga fyrir Norrænu ráðherranefndinni 2026 beinast sjónir að vanlíðan ungs fólks. Ljósmyndari: Ricky John Molloy, norden.org

Þegar klukkurnar í ráðhúsinu í Kaupmannahöfn hringdu á miðnætti og mörkuðu lok ársins 2025, og um leið upphaf árs þegar Danir og Færeyingar gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Þeir taka við af Finnum, sem hafa verið í fararbroddi samstarfsins síðastliðið ár.

Þjóðin sem gegnir formennsku getur sett mark sitt á starfsemina og það gera Danir-Færeyingar líka. Á árinu verður áhersla lögð á að vekja vitund ungs fólks um norrænar rætur sínar og vellíðan meðal ungs fólks á Norðurlöndum, sem lifir á stafrænni öld. Einnig verður lögð áhersla á að bæta gæði dagvistunarþjónustu og þannig leggja grundvöll að aukinni vellíðan yngstu barnanna.

Þetta kemur fram hjá danska barna- og menntamálaráðuneytinu sem og barna- og menntamálaráðuneytinu í Færeyjum. 

Vitund um norrænar rætur

Undir þemanu vitund um norrænar rætur munu sjónir beinast að því hvernig hægt er að styðja við nemendaskipti milli Norðurlandanna. Þetta gæti til dæmis átt við um nemendur í framhaldsskólum og starfsnámi.

– Með nemendaskiptum getur ungt fólk á Norðurlöndum öðlast tækifæri til að upplifa samfélög með sameiginlegar sögulegar rætur og lýðræðisleg gildi. Þetta getur styrkt tilfinningu fyrir norrænni samheldni, þar sem ungt fólk sér sig sem hluta af stærra menningarlegu og gildismiðuðu samfélagi, samanber upplýsingar frá ráðuneytunum.

Líðan norrænna barna og ungmenna á stafrænni öld

Í ráðuneytunum er velferð ungs fólks talin annað málefni sem þarfnast frekari áherslu.

– Allt of mörg börn og ungmenni á Norðurlöndum upplifa vanlíðan, að vera útilokuð frá veigamiklu félagsstarfi og hafa vaxandi áhyggjur af framtíðinni. Í ráðuneytunum er talið að upplýsa þurfi um árangursríkar aðferðir við að tryggja börnum og ungmennum heilbrigt og öruggt uppeldi á Norðurlöndum og bent er á að stafræn umbreyting hafi breytt lífi barna og ungmenna.

– Með tilkomu nýrrar tækni, samfélagsmiðla, gervigreindar og þörf fyrir stafræna færni er brýnt að börn og ungmenni læri að íhuga á gagnrýninn hátt hvernig þau nota tækni og rata í stafrænum heimi. Það er mikilvægt að við verndum börn og ungmenni Norðurlanda á stafrænni öld.

Gæði í dagvistun – velferð barna

Annað áherslusvið á formennskuárinu 2026 varðar yngstu börnin. Í Danmörku sýndu niðurstöður tveggja víðtækra gæðakannana varðandi 0-2 ára börn og 3-5 ára börn að sumar dagvistunarstofnanir styðja ekki nægilega við velferð, nám, þroska og menntun barna. Nokkrar rannsóknir hafa bent á svipaðar áskoranir varðandi gæði í dagvistun og velferð yngstu barnanna um gervöll Norðurlöndin. Á þessum grundvelli verður að hausti formennskuársins haldin norræn ráðstefna í Kaupmannahöfn með yfirskriftinni, Gæði daggæslu – Vellíðan barnanna.  Með ráðstefnunni er ætlunin að beina aukinni athygli að norrænu samstarfi á sviði daggæslu og veita undirstöðu undir bættar samræður og miðlun þekkingar. Laða á að embættismenn, starfsfólk og sérfræðinga hvaðanæva af Norðurlöndum til að halda erindi og taka þátt í faglegri umræðu með sérstakri áherslu á hvernig unnt er að stuðla að auknum gæðum og vellíðan í daggæslu.

Hér má nálgast formennskuáætlunina á eftirfarandi tungumálum:

Á dönsku: (Forbundne i skiftende tider)

Á færeysku: (Sameind í skiftandi tíðum)

Á grænlensku: (Piffinni allanngorartuni ataqatigiissut)

Nyeste artikler fra NLL

Två kvinnor i växthus med grönska och t.ex. tomater synliga.

09/02/2026

Sverige

6 min.

I Stenungsund leder praktisk undervisning till fysiska, psykiska och språkliga framsteg för människor genom Odla svenska. Projektet som nu permanentas ger framtidshopp till personer utan skolbakgrund samt ger kommuner sätt att stödja kommuninnevånare när politiken runt sfi och försörjningsstöd ändras.

Kvindelig hospitalsansat skubber medicinsk udstyr ned ad hospitalsgang.

03/02/2026

Island

7 min.

-viktig for pasientenes sikkerhet og de ansattes trivsel og inkludering.

Ung mann med hette bøyer hodet ned og holder fast i et svart nettinggjerde.

03/02/2026

Norden

4 min.

Når frihedsberøvelse bliver uundgåelig, bliver uddannelse afgørende: Skolegang som nøkkel til beskyttelse, rehabilitering og håp for barn i fengsel.

Share This