29/01/2025

Norge

Símenntun, Ævinám, Atvinnulíf, Nám fullorðinna fullorðinsfræðsla

Nefnd á vegum hins opinbera mælir með að símenntun í atvinnulífinu verði efld

Þann 14. janúar 2025 skilaði Nefnd um færniumbætur skýrslu sinni um hvernig Norðmenn geta bætt árangur með símenntun í atvinnulífinu. Efling þríhliða samstarfs um nám í atvinnulífinu og betri stafræn yfirsýn yfir tækifæri til símenntunar eru meðal tillagna nefndarinnar.

To personer giver hånd hen over et bord med en kontrakt og en pen, der ligger på en clipboard.

Norsk stjórnvöld vilja efla símenntun í atvinnulífinu

Forside af rapporten "Felles ansvar, felles gevinst" fra Norges offentlige utredninger 2025:1, med billeder af mennesker i forskellige erhverv og livssituationer.

–  Skortur á atvinnufærni er ein stærsta áskorun sem samfélagið stendur frammi fyrir. Skýrslan veitur okkur mikilvæga þekkingu  fyrir áframhaldandi vinnu, sagði Oddmund Hoel (Sp) ráðherra  háskóla og vísinda þegar hann tók á móti skýrslunni: NOU 2025-1: Sameiginleg ábyrgð, sameiginlegur ávinningur þríhliða samstarfs um hæfniþróun í atvinnulífinu.

Dag Terje Andersen, formaður nefndarinnar, lagði við afhendinguna áherslu á að Norðmenn búi við góð skilyrði fyrir umskipti – einkum með því að efla þríhliða samstarf um færnistefnu.

 – Náin samvinna aðila atvinnulífsins og ríkisins er brýn til þess að árangur með símenntun í atvinnulífinu náist, sagði Andersen. Hann lagði einnig áherslu á að nauðsynlegt væri að til væri  stafrænn vettvangur með yfirliti yfir mismunandi tilboð og verkfæri ætluð atvinnulífinu.

Fulltrúar i nefndinni eru sammála um nauðsyn og markmið að stuðla að færnistefnu og samstarfi aðila til að efla færniþróun í atvinnulífinu og veita öllu starfsfólki góð tækifæri til nauðsynlegrar færniþróunar. Hins vegar náðist ekki samkomulag um hvernig ætti að fjármagna þetta.

Skýrslan NOU verður sett í umsagnarferli veturinn 2025.

Bakgrunnur

Nefndin um færniumbætur hefur kannað hvernig aðilarnir þrír geta auðveldað  endurskipulagningu og nám í atvinnulífinu. Heildarmarkmiðin eru háleit, stöðug atvinna, vinna gegn auknum ójöfnuði sem og að tryggja framboð á hæfu starfsfólki sem atvinnulífið þarfnast. Nefndin hefur skoðað aðgerðir sem geta, saman eða í hver í sínu lagi, örvað fyrirtæki og starfsmenn til að afla sér þeirrar hæfni sem atvinnulífið kallar eftir.

Nefndin um færniumbætur var skipuð af konungi í ríkisráði þann 20. júní 2023. Verkefnið var að kanna hvernig aðilarnir þrír geta auðveldað endurskipulagningu og nám í atvinnulífinu. Forsenda þess eru heildræn markmið um mikla og stöðuga atvinnuþátttöku, vinna gegn auknum ójöfnuði og að tryggja framboð á starfsfólki með færni sem atvinnulífið þarfnast.

Í nefndinni sitja fulltrúar átta helstu samtaka vinnumarkaðarins. Starfsmenn í ráðuneyti um stafræna væðingu og opinbera stjórnsýslu hafa verið fulltrúar ríkisins sem vinnuveitanda. Skrifstofa nefndarinnar hefur verið hjá stofnun um æðri menntun og færni.

Krækja í skýrsluna á norsku.

Hér er upptaka frá afhendingunni

Få NLL’s nyhedsbrev

Med NLLs nyhedsbrev får du: Nyeste viden fra NLL som fx policy briefs og rapporter, vigtige nyheder fra de nordiske lande, aktuelle artikler, der går i dybden med feltet på tværs af sektorer, temaer og geografi samt overblik over kommende konferencer, seminarer og events.

Flere nyheder fra NVL

Text på lila bakgrund: Hur förutser Finland kompetensens framtid?

16/03/2026

Finland

Sitra har publicerat en rapport som visar hur Finland systematiskt arbetar för att förutse framtida kompetensbehov och stärka förmågan att planera utbildning och arbetsliv i takt med samhällsförändringar. Rapporten beskriver både nationella ramverk och konkreta metoder som används för att fånga upp utvecklingstrender, analysera framtidsscenarier och omsätta insikter i utbildningspolitik och praktiska satsningar.

Smilende soldat i uniform sammen med familie, som snakker i et lyst sykehusmiljø.

11/03/2026

Norge

I Sør-Varanger kommune i Nord-Norge samarbeider kommune, sykehus, politi og forsvar om å løse et felles problem – nemlig å skaffe og beholde kompetanse. Et nytt pilotprosjekt handler derfor ikke primært om utdanning eller rekrutteringskampanjer, men om å møte kompetanseutfordringer med tiltak som bidrar til utvikling av et helt lokalsamfunn.

Rapportomslag om språkkunskapskrav och språktestning för vuxna invandrare, grön design.

09/03/2026

Finland

En ny rapport från en arbetsgrupp tillsatt av undervisnings- och kulturministeriet och arbets- och näringsministeriet granskar språkutbildningen för vuxna invandrare och kraven på deras språkfärdigheter.

Share This