16/06/2026

Norge

Nám fullorðinna, Iðn- og starfsmenntun

4 min.

Nám á framhaldsskólastigi fyrir fullorðna samkvæmt áfangakerfi: – Við smíðum flugvélina á meðan við fljúgum

Við framhaldsskólann Strømmen er verið að byggja upp framhaldsskólanám samkvæmt áfangakerfi – fleiri fullorðnir fá fagbréf og störf í gegnum náið samstarf.

Aina Bjerkestrand Karlsen og Inger Kristin Bjørnstad

Aina Bjerkestrand Karlsen deildarstjóri og Inger Kristin Bjørnstad lektor, við fullorðinsfræðsludeildina við Strømmen framhaldsskólann í Lillestrøm-sveitarfélaginu.

Í húsnæði fullorðinsfræðsludeildar Strømmen-framhaldsskólans er andrúmsloftið spennu þrungið. Eftir nokkra daga verður skriflegt próf lagt fyrir 22 nemendur sem hafa lokið 4. áfanga í framhaldsskólanámi fyrir fullorðna (n. modulstrukturert videregående opplæring for voksne MVOV). Næsta skref þeirra sem standast prófið er að taka próf til fagbréfs í heilbrigðisgreinum. Fagbréfið er lokapróf sem staðfestir hæfni í samræmi við námskrá. Eftir að hafa lokið prófinu og fagbréfinu eru nemendurnir ekki lengur nemendur, heldur heilbrigðisstarfsmenn. Mikil spenna ríkir í kringum þetta fyrsta próf eftir nýju áfangafyrirkomulagi.

– Prófið verður mikil gæðatrygging fyrir námsgreinina. Það verður mikil áskorun fyrir nemendurna að svara skriflega á norsku, segir dósent Inger Kristin Bjørnstad, sem kennir við fullorðinsfræðsludeildina.

Að byggja flugvélina á meðan hún er á flugi 

Fyrir tveimur árum var hleypt af stokkunum áfangaskiptu námi og réttindi til að ljúka því öðluðust gildi. Það veitir fullorðnum rétt á áunninni náms- eða starfshæfni, sama hversu langan tíma það tekur.

– Við smíðum flugvélina á meðan við fljúgum, segir deildarstjórinn Aina Bjerkestrand Karlsen og brosir.

Það gæti  sennilega verið á við flug þegar nýjar námskrár voru teknar upp þar sem náminu er skipt í einingar.

– Við byrjuðum á því að tilgreina einingarnar. Í áfangaskiptu framhaldsskólanámi á að hafa eins mikinn hluta af náminu og hægt er á vinnustað, fyrst í starfi og síðan með samningi um vinnustaðanám.

Æfing og verknám

– Fyrsta hindrunin sem varð á vegi okkar var að fá pláss fyrir vinnustaðanámið. Það gerir ríkari kröfu til vinnustaða en almennt að hafa nemendur í starfsþjálfun.

Þegar nemandinn er í starfsþjálfun fylgist skólinn með námsferlinu. Þegar verknámssamningur er gerður ber vinnustaðurinn, fyrirtækið, ábyrgð. Sem betur fer höfum við gott tengslanet við fyrirtæki á heilbrigðissviði, segir Karlsen.

Flestir nemendur í fullorðinsfræðslu í Strømmen eru í námi tengdu heilbrigðisþjónustu en þar eru líka nemendur sem verða skóla- og frístundaliðar.

Markmiðið er samningur um vinnustaðanám

– Markiðið er að komast á samning um vinnustaðanám og í því felst áskorun. Nemendurnir eru áhugasamir og hafa mikla löngun til þess að starfa við heilbrigðisþjónustu, verða sjálfstæðir og afla sér tekna, segir Bjørnstad.

Bjerkestrand Karlsen og Bjørnstad telja mat á raunfærni sem margir nemendur fá  afar mikilvægt. Með því er kortlagt hvað nemandinn getur eða getur ekki gert, sem jafnframt gagnast nemandanum sjálfum.

Aina Bjerkestrand Karlsen og Inger Kristin Bjørnstad
Aina Bjerkestrand Karlsen deildarstjóri og Inger Kristin Bjørnstad lektor vinna að því að nemendur í námi fullorðinna ljúki námi með fagbréfi í höndunum.

Heilbrigðisnorska

Að sjálfsögðu er tungumálið krefjandi áskorun fyrir nemendurna. Ekki er nóg að vera fær um að nota tungumálið í daglegum samskiptum, heldur verða þeir að kunna skil á fagmáli. Langflestir nemendur hafa annað móðurmál en norsku. Við fullorðinsfræðsludeildina í Strømmen hefur verið fundin góð lausn.

– Við höfum komið á góðu samstarfi milli námsgreinakennarans og norskukennarans sem kenna 15 manna hóp saman. Síðan einbeitum við okkur að því sem við köllum heilbrigðisnorsku, segir Bjørnstad.

Sveigjanlegt námskeið

1. áfanginn er kynningaráfangi. Sé nemandi ekki tilbúinn til að halda áfram getur hann endurtekið áfangann. Alls eru áfangarnir fjórir, reiknað er með að hver taki sex mánuði, en hægt er að miða hraða eftir getu. Samkvæmt norsku menntamálastofnuninni er áformað að þetta verði „sveigjanlegt nám sem tekur mið af óskum, reynslu og kringumstæðum ungmenna og fullorðinna.“

Sveigjanlegir kennarar

Starfsfólki fullorðinsfræðslunnar í Strømmen er ljóst það verður að vera sveigjanlegt og að einnig þarf að taka tillit til kringumstæðna nemenda. Þeir vita að kringumstæður margra geta verið krefjandi. Þeir þurfa að koma sér fyrir í nýju landi og í annarri menningu. Þeir verða að afla sér nauðsynlegra tekna – og til að tryggja sér betri framtíð sækja þeir nám innan fullorðinsfræðslu. Sveigjanleiki á einnig við um vinnutíma. Kennararnir fylgja náið með á meðan nemendur eru í vinnustaðanámi. Í heilbrigðisgeiranum eru vaktir og kennararnir eru stundum úti á starfsnámsstöðum á kvöldin.

22 starfsmenn fullorðinsfræðslunnar í Strømmen vilja upphugsa nýja hluti og ekki innan A4-kassans. Þeim líkar vinnan.

„Stundum er mikið að gera hjá okkur, en stundum getur verið rólegt. Þannig viljum við hafa það,“ segir deildarstjórinn Bjerkestrand Karlsen.

Líffærafræði og meinafræði

Kennsla fer yfirleitt fram augliti til auglitis, en kennararnir eru líka að prófa sig áfram með netfundi og sjálfsnám.

– Við forgangsröðum því sem við kennum og vitum að líffærafræði og meinafræði eru bæði krefjandi og mikilvæg fög. Ekki síst að sjá umönnunarþarfir í samhengi við veikindi og búa síðan til aðgerðaáætlun og réttlæta ýmsar aðgerðir. Við leggjum mikla áherslu á þetta. Annars er mikilvægt að skipta á milli fræðilegrar og verklegrar kennslu, segir Bjerkestrand Karlsen.

Eins og kunnugt er læra fullorðnir best með því að framkvæma verkefnin í reynd.

Þríhliða samstarf

Brottfall úr náminu er sjaldgæft. Þetta var þekkt vandamál áður fyrr og eitt af því sem við vildum taka á með breytingum á námslokum. 

– Við erum jákvæð gagnvart MVOV og sjáum að það er árangursríkt fyrir nemendur. Með áfangaskiptu námi geta þeir komist fyrr í vinnu. Þetta er þríhliða samstarf milli nemanda, skóla og vinnustaðs. Það er mjög mikilvægt að þetta virki vel.

Mat

Þegar skriflega prófinu og fagprófinu er lokið mun fara fram mat. Þau hlakka til þess. Þá munu þau sjá hvort kennslan, leiðbeiningarnar og vinnubrögðin skila góðum árangri.

Meðalaldur nemendanna er 35 til 40 ár. Þetta þýðir að þau eiga mörg starfsár framundan og eftirspurnin eftir heilbrigðisstarfsfólki er mikil.

Fræðslumiðstöðvar

Sveitarfélagið Akershus, sem ber ábyrgð á fullorðinsfræðslunni, hefur nú ákveðið að koma á fót fræðslumiðstöðvum fyrir aðeins stærri svæði. Þetta verður ný áskorun fyrir frumkvöðlakonur í fullorðinsfræðslunni í Strømmen.

Håndtegnet skilt med pil som viser inngang for deltakere til voksenopplæring ved Strømmen VGS.
Fullorðinsfræðsludeildin við Strømmen hefur ekki hátt um það mikilvæga hlutverk sem hún  gegnir. Mest er um vert að nemendurnir rati á réttan stað.    

Að læra af norrænum samstarfsmönnum

– Við fáum gesti frá Svíþjóð í haust. Þeir eru forvitnir um hvernig við tökumst á við áskoranirnar. Við, okkar vegna, erum einnig áfjáð í að læra af sænskum samstarfsmönnum. Við erum nú að skipuleggja heimsókn til þeirra sem starfa við fullorðinsfræðslu í Strømstad, segir Bjerkestrand Karlsen.

Hvað felst í áfangaskiptu námi?

„Áfangaskipt nám er ein margra aðgerða í lokaumbótum sem munu stuðla að því að fleiri fullorðnir geti aflað sér fagbréfa eða lokið sveinsprófi og að hægt verði að uppfylla þarfir atvinnulífsins í Noregi til að mæta þörf fyrir hæft vinnuafl.

Menntunin verður aðlöguð betur að þörfum fullorðinna, stöðu og kringumstæðum, þannig að auðveldara verði að skipta á milli náms, vinnu og annarra skyldna.

Áfangaskipt nám til fag- eða sveinsbréfs er námsskipulag í völdum fögum fyrir þá sem eiga rétt á framhaldsskólanámi fyrir fullorðna. Námsskipulagið er frábrugðið öðrum áætlunum fyrir ungt fólk og fullorðna, bæði hvað varðar skipulag, tímanotkun og efni. Tilgangur skipulagsins er að fullorðnir nái á skjótan og skilvirkan hátt þeirri hæfni sem nauðsynleg er til að standast próf og fá fag- eða sveinsbréf í viðkomandi fagi. Lokahæfnistigið er það sama og í venjulegu námi.“

Nyeste artikler fra NLL

Aina Bjerkestrand Karlsen og Inger Kristin Bjørnstad

16/06/2026

Norge

4 min.

Strømmenin toisen asteen oppilaitoksessa moduulimuotoista aikuiskoulutusta rakennetaan käytännön kautta – tiivis yhteistyö tuottaa enemmän tutkintoja ja työpaikkoja.

En person sitter med ryggen mot kameran och tittar på en liten robot med skärmögon i en ljus inomhusmiljö.

15/06/2026

Finland

5 min.

Hur vet man vilka kompetenser som behövs om fem eller tio år? I Finland har myndigheter, utbildningsaktörer och arbetsliv länge arbetat systematiskt med att försöka hitta svaret. Men när AI, den gröna omställningen och demografiska förändringar omformar arbetsmarknaden räcker gårdagens modeller inte längre.

Jari Toivonen

15/06/2026

Finland

5 min.

I en liten by i södra Finland omvandlas använda textilier till nya filtprodukter som säljs både lokalt och internationellt. Företaget Vilikkala är ett exempel på hur den gröna omställningen kan ske framgångsrikt långt från storstäderna. Här växer helt nya kompetenser fram under arbetets gång.

Share This