Åbner i en ny fane

Ný námskrá fyrir sænsku sem annað mál tekur gildi árið 2027

Nyhed: Grunnleikni

Ellefu námskeið um miðlæg efni og tvö ný námskeið í grunnleikni í lestri og skrift. Þetta eru dæmi um breytingarnar þegar ný námskrá fyrir sænsku sem annað mál (s. svensk for innvandrere; sfi) verður kynnt í Svíþjóð þann 1. janúar 2027.

Sverige
NVL Logo
Nordisk Netværk for Livslang Læring,
Nordisk Netværk for Livslang Læring
Närbild av en ljus, grov väggyta med blå skugga och svart text: ”Hoppas jag klarar SFI och får ett fint jobb som kan göra min familj stolt.”

Nýja sfi-námskráin felur í sér nokkrar breytingar miðað við þá sem er nú í gildi. Um er að ræða  sfi-námskrár fyrir ellefu mismunandi námskeið, sem öll fjalla um miðlæg efni. Þetta er nýung í samanburði við núverandi stýriskjal, sem inniheldur heildar sfi-námskrá fyrir alla sfi-kennslu. Tilgang og framvindu námskeiðanna er einnig lýst á nýjan hátt.

Tvö ný námskeið um les- og ritunarhæfni

Tvö alveg ný námskeið hafa verið þróuð fyrir nemendur með mismunandi þarfir fyrir stuðning við  að efla grunnleikni sína í lestri og ritun.

Grunnleikni í lestri og ritun er ætlað nemendum sem eru ekki enn læsir á tungumálinu sem þeir kunna best og hafa litla eða enga reynslu af formlegu námi.

Latínuyfirfærsla er ætluð nemendum sem geta lesið og skrifað á tungumáli með öðru ritkerfi en latneska stafrófinu. Námskeiðið mun hjálpa þeim að yfirfæra lesfærni sína yfir á latneska stafrófið og sænsku. Markhópurinn hefur reynslu af formlegu námi og af því að nota skrift í mismunandi samhengi.

Stuðningur við kennara, skólastjórnendur og skólastjóra 

Áður en breytingin verður innleidd  fyrirliggur stuðningsefni bæði fyrir kennslu og innleiðingu.

Sænska miðstöðin fyrir sænsku sem annað tungumál (s. Nationellt centrum för svenska som andraspråk NC) hefur samið efni á sænsku sem ætlað er kennurum og skólastjórum; ett implementeringsmaterial som förtydligar progressionen i de nya kursplanerna

Sænska Menntámálastofnunin hefur einnig gefið út stuðningsefni á sænsku um nýju námskeiðin: stöd inför implementeringen för skolchefer och rektorer samt ett informationsmaterial om de nya kursplanerna i sfi.

Få NLL’s nyhedsbrev

Med NLLs nyhedsbrev får du: Nyeste viden fra NLL som fx policy briefs og rapporter, vigtige nyheder fra de nordiske lande, aktuelle artikler, der går i dybden med feltet på tværs af sektorer, temaer og geografi samt overblik over kommende konferencer, seminarer og events.

Looking for something in particular?

Or do you have a question about NLL and Lifelong Learning?
Try our new customized NLL AI Assistant.

Try it here
Søg på NLL