Norræn ráðstefna um stærðfræðimenntun fullorðinna – framtíðartækifæri

Nyhed: Grunnleikni

Hvernig getum við eflt stærðfræðikunnáttu fullorðinna í stafrænum heimi? Á Norrænu ráðstefnunni um stærðfræðikennslu fullorðinna, sem fór fram í kuldanum í Gautaborg, komu saman kennarar, fræðimenn og leiðbeinendur hvaðanæva Norðurlanda til að kanna nýjar leiðir í stærðfræðikennslu. Með áherslu á símenntun, stafræna væðingu og nýstárlegar kennsluaðferðir var þessi ráðstefna samkomustaður þar sem kennslufræði stærðfræði framtíðarinnar er mörkuð.

Sverige
Fredrik Berglund
Fredrik Berglund, National koordinator - Sverige
Fredrik BerglundNational koordinator - Sverige
Pedagogen, Göteborgs Universitet
”Pedagogen”, Við Gautaborgarháskóla

Þarfir fullorðinna og símenntun

Dagana 21. – 22. nóvember 2024 var haldin norræn ráðstefna um stærðfræðikennslu fullorðinna við Menntavísindasvið Háskólans í Gautaborg. Ráðstefnan var skipulögð af NVL ásamt Menntamálastofnun Svíþjóðar, Visnet, Miðstöð stærðfræðimenntunar í Svíþjóð og  Háskólann í Gautaborg. Tilgangur ráðstefnunnar var að stuðla að miðlun þekkingar og nýsköpun á sviði stærðfræðikennslu fyrir fullorðna.

Nærri 100 kennarar, vísindamenn og fulltrúar stjórnvalda víðs vegar að á Norðurlöndum komu saman á ráðstefnunni til að kanna í sameiningu hvernig hægt væri að þróa stærðfræðikennslu til að mæta þörfum ört breytandi heims.

Á ráðstefnunni var lögð áhersla á mikilvægi þess að aðlaga stærðfræðikennslu að mismunandi þörfum fullorðinna. Sérstök áhersla var lögð á hvernig stærðfræði getur eflt sjálfstæði og árangur í starfi.

Diane Dalby
Diane Dalby, Háskólanum í Nottingham á Englandi

Hagnýt verkfæri fyrir kennara

Auk fróðlegra fyrirlestra var boðið upp á nokkrar samhliða málstofur á ráðstefnunni. Þátttakendum gafst kostur á að kafa ofan í nokkur norræn dæmi af ólíkum toga. Nefna má  kynningu Mariku Toivola frá Finnlandi: „Flipped Learning/Assessment“ sem hlaut góðar undirtektir. Eins nutu fræðimennirnir Pauline Vos og Anders Wiik frá Noregi vinsælda, en þau  ræddu um hvaða stærðfræði nýtist best í daglegu lífi, og komu inn á mismunandi kennsluaðferðir í stærðfræði. Markmið málstofanna var að hvetja þátttakendur til að kanna skapandi kennsluaðferðir og efla hæfni þeirra til að mæta sérstökum þörfum fullorðinna.

Hlutverk stærðfræði í daglegu stafrænu lífi

Endurtekið þema var hvernig grunnleikni í stærðfræði er enn mikilvæg, jafnvel í stafrænum heimi. Umræður á ráðstefnunni beindust að því hvernig meiri stærðfræði kunnátta getur styrkt hæfni fullorðinna til að njóta sín á vinnumarkaði og í samfélagi þar sem stafræn færni og stærðfræðileg hugsun gegna sífellt mikilvægara hlutverki. Bætti kunnátta í stærðfræði getur einnig dregið úr hættu á útilokun þeirra sem skortir þessa leikni.

– Við veitum því athygli hve mikilvægt og gagnlegt samstarf til dæmis verknámskennara og stærðfræðikennara er. Þetta kemur nemendum til góða og dregur úr mögulegum hindrunum. „Tengdu þig,“ segir Kalle Ojanen, skólameistari Starfsmenntaskólans í Åbo í Finnlandi.

Nordisk posterutställning
Sýning á Norrænum plakötum

Áhrif stafrænnar væðingar á stærðfræðikennslu

Aðal umfjöllunarefni ráðstefnunnar sneri að því hvernig hægt er að nota stafræn verkfæri á áhrifaríkan hátt í stærðfræðikennslu. Alt frá innleiðingu rafrænna hjálpartækja og gervigreindar hefur verið deilt um hlutverk tækni í kennslu. Þó sumir sjái stafræna væðingu sem tækifæri til að bæta nám og þátttöku, vara aðrir við því að óviðeigandi notkun geti skapað hindranir fyrir dýpri skilningi. Í fyrirlestrunum var lögð áherslu á hvernig hægt er að samþætta gervigreind til að styrkja bæði getu kennara og þekkingarstig nemenda.

Alper Yilmaz
Alper Yilmaz, sérfræðingur, við sænsku menntamálastofnunina

Framtíðarsýn

Norræna ráðstefnan um stærðfræðikennslu fullorðinna var meira en bara fundarstaður áhugafólks um stærðfræði – á henni gafst tækifæri til komast í tengslanet og hvetja til breytinga á sviði stærðfræðikennslu. Von okkar er að með þessari norrænu ráðstefnu eflist  sameiginleg sýn um nám án aðgreiningar og árangursríka stærðfræðikennslu sem eflir símenntun og samfélagsþróun almennt.

– Ég held að það besta við ráðstefnuna hafi verið tækifæri til að tengjast öðrum á sviði stærðfræði. Fyrirlestur Diane Dalby veitti nýjar hugmyndir og innblástur að því hvernig við getum breytt kerfinu okkar í heild sinni þegar við kennum stærðfræði. Maður heyrir þetta sjaldan annars, segir Björn Magnússon, hjá fullorðinsfræðasetrinu í Umeå.

NVL:s Nordiska fröer
NVL:s Nordiska fröer

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, fyrirlesara, rannsóknir og viðburði framundan má lesa á heimasíðu NVL

Få NLL’s nyhedsbrev

Med NLLs nyhedsbrev får du: Nyeste viden fra NLL som fx policy briefs og rapporter, vigtige nyheder fra de nordiske lande, aktuelle artikler, der går i dybden med feltet på tværs af sektorer, temaer og geografi samt overblik over kommende konferencer, seminarer og events.

Looking for something in particular?

Or do you have a question about NLL and Lifelong Learning?
Try our new customized NLL AI Assistant.

Try it here
Søg på NLL