24/09/2025

Norden

Menntastefna, Lýðræði, Ævinám

Fjallað var um samstarf Norðurlanda til framtíðar í Mariehamn

Þann 12. september 2025 var Mariehamn á Álandseyjum vettvangur umræðna um hvernig Norðurlöndin geti styrkt samstarfið á tímum mikilla hnattrænna áskorana.

Navneskilt til seminar om Nordens fremtidige samarbejde arrangeret af Nordisk Ministerråd, med logoer fra Ålands landskapsregering og Finlands udenrigsministerium.

Tækifæri og áskoranir sem blasa við norrænu samstarfi voru rædd á málþinginu í ljósi núverandi landfræðilegs stjórnmálaástands, stafrænnar umbreytingar og samkeppnishæfni Norðurlanda.

Finnland og Álandseyjar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni, þau stóðu að málþingi fyrir ráðherra, vísindamenn og sérfræðinga frá öllum Norðurlöndunum.

• Tími Norðurlanda  er núna og náið samstarf Norðurlanda er mikilvægara en nokkru sinni fyrr, sagði Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, lagði áherslu á það á málþinginu.

Helsinkisamningurinn og örugg Norðurlönd

Eitt helsta umræðuefnið var Helsinkisáttmálinn, þar sem áhersla er lögð á örugg, sterk og traust Norðurlönd til framtíðar. Norðurlandaráð mælir með endurskoðun samningsins og þátttakendur lögðu áherslu á mikilvægi þess að allar átta þjóðir Norðurlanda taki þátt í vinnunni við að forgangsraða sameiginlegum samstarfssviðum.

Menntun og hreyfanleiki sem samkeppnisafl

Fulltrúi Norræna samstarfsvettvangsins um símenntun (NLL) tók þátt í pallborðsumræðum um hlutverk menntunar og vinnumarkaðar og benti á brýna  þörf fyrir auðveldara ferli fyrir  viðurkenningu á vottorðum um menntun og starfshæfni milli landanna.

Samkvæmt NLL getur aukin og sveigjanlegri staðfesting og viðurkenning á námi, einnig utan formlega kerfisins, eflt hreyfanleika og tryggt bestu mögulegu nýtingu hæfni milli landanna. Auðveldun gagnkvæmra viðurkenninga á rafrænum skilríkjum Norðurlandaþjóðanna munu stuðla að hreyfanleika – bæði fyrir einstaklinga og opinbera þjónustu.

Samstarf hluti lýðræðislegs styrks

Þá var lögð áhersla á Norrænt samstarf sem hlut af verndun lýðræðis. Meðal leiða til að efla seiglu á tímum þegar samfélagið stendur frammi fyrir sífellt flóknari áskorunum eru símenntun, fjölmiðlaþekking og sameining. Eins og einn þátttakandi orðaði það á málþinginu: „Við þjálfum seiglu saman.“

Hér er upptaka af málþinginu um norrænt samstarf í framtíðinni

Meira efni um fjölmiðlamyndun og lýðræði á Norðurlöndum.

Få NLL’s nyhedsbrev

Med NLLs nyhedsbrev får du: Nyeste viden fra NLL som fx policy briefs og rapporter, vigtige nyheder fra de nordiske lande, aktuelle artikler, der går i dybden med feltet på tværs af sektorer, temaer og geografi samt overblik over kommende konferencer, seminarer og events.

Flere nyheder fra NVL

Kort over Europa med administrative grænser markeret i mørke linjer på lys baggrund.

08/04/2026

Norden

Resilient Regions Policy Dashboard samler data og politiske erfaringer, så regioner bedre kan planlægge fremtidens udvikling og tiltrække borgere.

Kollasj av ni yrkespersoner, blant annet lærer, mekaniker, lege, kokk, baker og kontoransatte, i ulike arbeidsmiljøer.

06/04/2026

Norge

En ny rapport fra Direktoratet for høyere utdanning og kompetanse (HK-dir) gir en oppdatert analyse arbeidsmarkedets kompetansebehov i Norge. Hvor er behovet størst på kort sikt? Statistikk, arbeidsgiverundersøkelser og nyere forskning er sammenstilt for å belyse hvilke utdanninger, yrker og næringer som opplever størst mangel og hvordan dette varierer mellom regioner.

To studerende med rygsække går mod en historisk universitetsbygning med store vinduer.

01/04/2026

Island

Att återvända till skolbänken efter ett långt uppehåll kan kännas som ett stort steg. För Klara och Eiríkur, För två studenter vid Mímir Livslärande center i Reykjavik, som båda läst programmet Menntastoðir, visade det sig vara det bästa beslut de tagit.

Share This