Um NLL
Nordisk Netværk for Livslang Læring
Norrænt tengslanet um nám fullorðinna – samstarf á Norðulöndum
NLL á að:
- Styðja þróun og innleiðingu stefnumótunar um símenntun og færniþróun innan mismunandi sviða fullorðinsfræslu í norrænu ríkjunum
- Stuðla að þróun norrænu menntakerfanna gegnum stefnumótunarstarf með Norrænu ráðherranefndinni og samstarfi við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni hverju sinni.
- Styðja við persónulega þróun og lýðræðislega þátttöku gegnum fjölbreytilega fullorðinsfræðslu
- Vinnur þvert á atvinnugreinar og landamæri
- Styðja samspilið við frjáls félagasamtök og atvinnulífið, þar á meðal lýðfræðsluna
- Upplýsa um niðurstöður norræns samstarfs um fullorðinfræðslu á norrænum vettvangi
Hvernig vinnur NLL?
Norrænt tengslanet um nám fullorðinna er samstarfsvettvangur fyrir fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum með áherslu á forgangsröðun Norrænu ráðherranefndarinnar. NLL styður við bæði stefnumörkun og framkvæmd er varðar hæfniþróun og nám fullorðinna.
NLL er byggt upp á tengslanetum sem vinna þverfaglega yfir öll Norðurlöndin og byggir á norrænu samstarfsmódeli. Niðurstöður úr vinnu tengslanetanna nýtast bæði fyrirtækjum, stofnunum og stjórnsýslunni á Norðurlöndum. NLL beinir sjónum m.a að nýsköpun í fullorðinsfræðslu, námi á vinnumarkaði, ráðgjöf, námsmati og sveiganleika í námi.
Hvernig miðlar NLL verkefnum sínum?
NVL hefur mismunandi leiðir til að koma niðurstöðum tengslaneta á framfæri. Má þar nefna með stefnumörkunum, skýrslum og vefritinu Dialogweb. Stefnumarkanir lýsa ákveðnum stefnumótandi tilmælum til þeirra er sinna stefnumótun. Skýrslur birta niðurstöður tengslaneta og má nýta í áframhaldandi vinnu innan Norrænu ráðherranefndarinnar jafnt sem að vera kveikja að nýjum rannsóknum.
Vefritið Dialogweb inniheldur greinar, frásagnir og viðtöl um hæfniþróun og fullorðinsfræðslu frá öllum Norðurlöndunum. Lesendur koma úr ýmsum áttum meðal annars eru þeir kennara, verkefnastjórar og ráðamenn innan stjórnsýslunnar en einnig fulltrúar atvinnulífsins og frá frjálsum félagasamtökum.
Í Fréttabréf NLL eru birtar fréttir af menntamálum í norrænu löndunum og upplýsingar um nýjungar, endurbætur og aðgerðir auk upplýsinga um norrænar ráðstefnur.
NLL og norrænt samstarf
Það er markmið í norrænu samtarfi að öllum gefist kostur á að læra og þroskast ævilangt. Þessu markmiði er m.a náð með því að efla samstarf á sviði þekkingar og greiningar á helstu viðfangsefnum fullorðinsfræðslunnar. Þeir aðilar sem koma helst að norrænu samstarfi um fullorðinsfræðslu og símenntun eru NLL og Nordplus. Verkefni NLL eru mikilvægur stuðningur við framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar um að Norðurlönd skulu vera sjálfbærasta og samþættasta svæði heims.
Skipulag
NLL er áætlun á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og fjármagnað af henni. VIA University College í Árhúsum er hýsingaraðili NLL áætluninnar.
Móðurnet NLL er skipað fulltrúum frá öllum Norðurlöndum.
Kontakt

Antra Carlsen