27/08/2025

Norge

Lýðræði, Jöfn tækifæri, Nám fullorðinna fullorðinsfræðsla

4 min.

Kosningar og lýðræði á stundaskrá þátttakenda á námskeið hjá sveitarfélaginu Nordre Follo

Flóttamenn sem koma til nýs lands eiga margt ólært, en búa kannski jafnframt yfir erfiðri reynslu. Að tileinka sér ríkjandi tungumál þjóðarinnar er lykillinn að því að geta tekist á við daglegt líf og fá vinnu.

Helene Eidsvoll Rusten

Helene Eidsvoll Rusten hjá Fræðslumiðstöð Nordre Follo.

Lögð er þung áhersla í norsku inngildingaráætluninni, á tungumálakennslu í undirbúningsnámi fullorðinna sem og í annarri tungumálakennslu, með það að leiðarljósi að fá nýja vinnu.  Að læra um lýðræði og ef til vill að heimsækja norska Stórþingið er hluti af kennslu þeirra sem sækja námskeið hjá fullorðinsfræðslumiðstöðinni í sveitarfélaginu Nordre Follo.

Leikir eru hentug aðferð til þess að skapa fjölbreytni. Hér er Helene Eidsvoll Rusten kennari við fræðslumiðstöð í Nordre Follo að leiðbeina þátttakendum í einu af leikjunum sem notaðir eru við kennsluna.  

Helene Eidsvoll Rusten
Leikir eru góð aðferð til þess að skapa fjölbreytni í tungumálanámi. Hér má sjá Helene Eidsvoll Rusten kennara hjá Fræðslumiðstöð Nordre Follo leiðbeina þátttakendum í einu af leikjunum sem notast er við.

Læra tungumál með leikjum

Við fáum að heimsækja norskunámskeið í fræðslumiðstöðinni í Kolbotni, rúmum tíu kílómetrum sunnan við Ósló. Um tuttugu fullorðnir flóttamenn sitja einbeittir við verkefni dagsins. Kennarinn Helene Eidsvoll Rusten hefur valið leikjaaðferðina í dag. Í einum hópi eiga þau finna rétta tíð sagna, í næsta upplýsa um tímann og í þriðja hópnum fást þau við orð um mismunandi fjölskyldutengsl. Þegar allir hafa fengið tækifæri til að prófa sig áfram nokkrum sinnum skipta þau yfir í næsta leik. Já, þetta er frábær leið til að læra. Námskeiðið hefur aðeins staðið yfir í einn og hálfan mánuð en þau hafa þagar náð nokkrum tökum á norskunni. Margir hafa aðeins stutta  skólagöngu að baki.

20 þjóðerni

Hjá fræðslumiðstöðinni í Follo sækja um 420 þátttakendur af fleiri en 20 þjóðernum þjálfun. Kennsla í norsku felur einnig í sér þjálfun í samfélagsfræði og kynningarnámið inniheldur skyldunámskeið og hæfniþjálfun. Í undirbúningsnámi fyrir fullorðna (FOV) gilda grunnskólanámsfögin, þar á meðal stafræn færni.

– Er lögð áhersla á að læra að taka virkan þátt sem borgari?

– Við leggjum áherslu á það. Við viljum veita þeim meðákvörðunarrétt. Þau eiga að láta til sín taka í bekknum og leggja sitt af mörkum við að skipuleggja þjálfunina. Til dæmis í átökum ber okkur að hafa ferli þar sem allir sem að málinu koma fá tækifæri til að tjá sig. Við höfum einnig reynt með notendaráðum, en það hefur reynst erfitt að ná því það er stöðugur straumur þátttakenda, segir Catharina Azarian, deildarstjóri í fræðsludeild miðstöðvarinnar.

Catharina Azarian
– Við notum fundarsal sveitarstjórnarinnar i fyrrum ráðhúsi til funda með stjórnmálamönnum í sveitarfélaginu, segir Catharina Azarian. Hún stjórnar fræðsludeildinni hjá Fræðslumiðstöðinni í Nordre Follo.

Að taka ákvarðanirnar sjálf

– Það er brýnt að líta á þátttakendur sem fullorðna einstaklinga og láta þá bera ábyrgð á eigin lífi. Þeir mega ekki verða óvirkir. Sumir koma úr kringumstæðum þar sem ytri aðstæður hafa verið þannig að þeir hafa ekki getað tekið eigin ákvarðanir og þá er hætt við að viðkomandi haldi sér í slíku ástandi, segir Azarian.

– Við kennararnir viljum gjarnan hjálpa til, en við verðum að gefa þeim innsýn í hvaða möguleika þeir hafa og láta þá síðan taka ákvarðanirnar sjálfir.

Hjálp til sjálfshjálpar

– Hvað með stafræna færni?

– Ég sé að margir þurfa stuðning, en það eru líka takmarkanir á því hversu mikla aðstoð við getum veitt við þjálfun í stafrænum verkfærum fyrir þá sem búa yfir takmarkaðri þekkingu fyrir. Flóttamannaþjónustan í sveitarfélaginu veitir einnig persónulega aðstoð hvað þetta varðar. Við verðum hvernig sem er að reyna að veita aðstoð til sjálfshjálpar.

Lýðræði og stjórnmál

Fræðslumiðstöðin er i góðu húsnæði í fyrrum ráðhúsi í Kolbotni, því starfsemi ráðhússins var flutt í annað byggðarlag eftir sameiningu sveitarfélaga. Húsið er miðsvæðis í Kolbotni, í miðju fallegra grænna svæða.

– Í húsinu er fundasalur sveitarstjórnar Nordre Follo og þar höfum við haldið fundi með þátttakendum námskeiðsins og sveitarstjórnmálamanna með fræðslu um hvernig sveitarstjórnarlýðræði virkar – þar gefst tækifæri til að spyrja stjórnmálamennina spurninga, segir Azarian.

Prufukosningar og heimsóknir á Stórþingið

Húsið er notað sem kjörstaður og vettvangur fyrir forkosningar. Þetta veitir þátttakendum námskeiðsins innsýn í hvernig kosningar fara fram. Til þess að einstaklingurinn geti upplifað hvernig maður ber sig að eru haldnar prufukosningar í aðdraganda kosninga. Heimsókn á Stórþingið er einnig gagnlegt og vinsælt tiltæki.

Lögregla og skattyfirvöld

Fulltrúar sumra stofnana í samfélaginu koma líka í heimsókn og veita upplýsingar um starfsemina og hvaða aðstoð er hægt að sækja. Lögregla og skattyfirvöld gagnast vel þeim sem eru að reyna að ná tökum á norsku. Með atvinnu og tekjum er nauðsynlegt að geta skráð sig inn á skatteetaten.no. Þegar talað er um störf, þá miðar kynningarnámið og tungumálanámið greinilega að því að tryggja hæfni til starfa.

Catharina Azarian, hefur stundað nám í norrænum fræðum með áherslu á annað tungumál. Hún hefur kennt norsku í ýmsu samhengi, þar á meðal á læsisnámskeiðum fyrir börn og í norskunámi  fullorðinna. Hún sinnir nú í fullu starfi stjórn fræðsludeildarinnar í Nordre Follo.

Nyeste artikler fra NLL

Person med röd keps, hörlurar och ryggsäck står med skateboard utanför en butik och tittar på sin mobil.

20/04/2026

Sverige

5 min.

Stockholms stad har ett elevteam som arbetar för att ta hand om unga vuxna som varken arbetar eller studerar, UVAS. De fångar upp, förbereder, ger stöd och självförtroende, samt ser till att eleven klarar sig genom komvux.

Business meeting in a bright conference room with a speaker presenting to seated attendees around U-shaped tables.

15/04/2026

Norden

4 min.

On March 19, the advisory board of the Future Skills – Bridging the Competence Gap project met in Copenhagen to compare Nordic approaches to skills anticipation and tripartite reskilling for the green transition.
This article highlights examples from Denmark and Sweden on education–work cooperation, a national competence policy initiative from Norway, and rapid economic restructuring and reskilling needs in Finland.

Felix Abraham Unogwu

13/04/2026

Danmark

5 min.

Med udgangspunkt i it-undervisning skaber ReDI School jobmuligheder for primært kvindelige flygtninge og indvandrere. Det sker gennem undervisning i it på flere niveauer og ved at give kursisterne netværk i relevante brancher. I Malmø foregår det i samarbejde med kommunen, hvilket giver flere fordele for alle parter.

Share This