24/02/2026

Norge

Símenntun, Ævinám

5 min.

Brýnt er að mennta þá sem eiga að meta menntun annarra

Þeir sem ekki hafa prófskírteini frá skóla geta kortlagt og skjalfest þekkingu sína. Þetta gerir þeim kleift að fá viðurkenningu á því sem þeir geta og vita og þannig forðast að þurfa að byrja upp á nýtt í skóla. Mat á raunfærni getur verið lykillinn að framtíð með menntun og atvinnu. Að meta þekkingu annarra krefst góðrar hæfni af hálfu þess sem framkvæmir matið. Þeir þurfa einnig menntun.

Illustration af en person i et klasseværelse ved computere, med alfabetkort på væggen, et skelet og et verdenskort i baggrunden.

Myndskreyting úr námskeiðinu. Teiknari: Rune Glad, Pindrop.

Raunfærnimat eða mat á áunninni kunnáttu og færni hefur verið viðfangsefni Norræna samstarfsvettvangsins um símenntun um árabil. Raunfærnimatsnetið hefur unnið mikið starf. Stofnun háskóla- og færniþróunar hefur þróað kerfi fyrir slíkt mat í Noregi. Nýjast er námskeið fyrir fagfólk sem framkvæmir mat á raunfærni fyrir umsækjendur í undirbúningsnám fyrir fullorðna (Forberedende Opplæring for Voksne). FOV er tilboð fyrir fullorðna sem hafa ekki lokið grunnskólanámi eða geta ekki skjalfest það.

Áfangabundið

Í FOV eru umsækjendur metnir í fimm fögum; norsku, ensku, samfélagsfræði, stærðfræði og raungreinum. Hverju fagi er skipt í fjóra áfanga. Hægt er að taka einn áfanga fyrir hvert fag og fá frekari þjálfun. Einnig er hægt að fá viðurkenningu fyrir heilt fag ef viðkomandi uppfyllir kröfur í öllum fjórum áföngum. Með tímanum hefur verið mikil áhersla verið lögð á að efla gæði raunfærnimats og hafa það eins líkt og mögulegt er um gervallan Noreg.

Nýr starfsferill að loknu mati á raunfærni

Einstaklingur sem hefur gengið í gegnum mat á raunfærni segir að hann hafi mætt í tvo daga og fengið verkefni í norsku, ensku, samfélagsfræði, stærðfræði og raungreinum.

– Þar sem ég átti í erfiðleikum með skrifleg próf var einnig skipulagt munnlegt próf. Mér gekk vel í stærðfræði og fékk megnið af því fagi rétt, segir hann. Í hinum fögunum fékk hann kennslu þannig að hann stóðst öll fimm fögin og gat þannig haldið áfram námi á framhaldsskólastigi. Hann var þreyttur eftir margra ára erfiða líkamlega vinnu og valdi því starfsgrein sem krafðist annarrar færni en líkamlegs styrks. Um leið og hann fékk fagbréfið fékk hann fasta vinnu. Hann þurfti ekki lengur að sitja við eldhúsborðið og horfa á vini sína fara í vinnuna á morgnana, eins og hann orðaði það sjálfur. Á sama tíma fékk samfélagið mjög þarfan heilbrigðisstarfsmann.

Netnámskeið fyrir þá framkvæma raunfærnimat

– Við höfum búið til tvö netnámskeið í um mat á raunfærni; eitt fyrir þá sem koma að mati fyrir undirbúningsnám fyrir fullorðna (FOV), sem kom út árið 2025, og eitt fyrir þá sem meta i nám á  framhaldsskólastigi fyrir fullorðna (Videregående Opplæring for Voksne)  VOV, sem kom út árið 2024, segir Camilla Alfsen, yfirráðgjafi í Stofnun háskóla- og færniþróunar í Noregi.

Camilla Alfsen
– Mat á raunfærni snýst um að meta hvort hæfni fullorðinna sé jafngild því sem krafist er í námskrá í viðkomandi fagi, segir Camilla Alfsen, yfirráðgjafi hjá Stofnun háskóla- og færniþróunar.

– Bæði námskeiðin voru búin til vegna þess að fagfólk vildi fá stuðningsefni með innlendu sjónarhorni. FOV er fullorðinsfræðsla á vegum sveitarfélaga og VOV er fullorðinsfræðsla á vettvangi fylkjanna (Noregi er stjórnsýslulega skipt upp í fylki og í hverju fylki geta verið mörg sveitarfélög). Viðmiðin sem fullorðinn er metinn út frá eru byggð á efni viðkomandi námskrár, heldur Alfsen áfram og bendir á að námskeiðin veiti almenna kynningu á mati á raunfærni. 

Hið góða samtal

Árangursríkt mat á raunfærni hefst með samtali sem grundvallast á öryggi og einlægni. Á þeim fundi leggur þú sem fagmaður grunninn að öllu ferlinu, segir í námskeiðinu. Það er mikilvægt að umsækjandinn treysti fagaðilanum sem framkvæmir matið.

Jafngildi

Jafngildi er lykilorð í mati.

– Mat á raunfærni snýst um að meta hvort hæfni fullorðinna einstaklinga er jafngildi því sem krafist er í námskrá fyrir viðkomandi fag, leggur Alfsen áherslu á. Þetta er útskýrt í námskeiðinu. Með íhugunarverkefnum gefst þátttakanda námskeiðsins tækifæri til að hugsa um hvað jafngildi þýðir í reynd.

Fjögur þrep

Mat á raunfærni fyrir undirbúningsnám fyrir fullorðna er oft skipt í fjögur stig. Áföngunum er lýst á námskeiðinu:

Leiðbeiningar og skýringar

Kortlagning

Mat og úttekt

Skjalfesting

Vandi

Námskeiðið fjallar um vandamál sem geta komið upp við mat á raunfærni. Til dæmis geta komið upp tungumálaerfiðleikar. Ef umsækjandi hefur ekki gott vald á norsku er mögulegt að nota ensku eða annað tungumál. Einnig er hægt að nota túlka.

– Umsækjandi getur haft góða fagþekkingu en samt takmarkaða norskukunnáttu. Í slíkum tilfellum verður að íhuga hvort umsækjandinn gæti notið góðs af kennslu á hærra þrepi eða hvort meiri áhersla ætti fyrst að leggja á tungumálanám, segir í námskeiðinu. Þetta er metið einstaklingsbundið og rætt við umsækjandann.

Margir velja heilbrigðisgreinar

Hingað til hefur mat á raunfærni verið nýtt fyrir þá sem vilja hefja starfsnám.

– Hvaða greinar eru vinsælastar fyrir þá sem ljúka undirbúningsnáminu og færa sig yfir í nám í framhaldsskóla?

– Margir velja heilbrigðisgreinar en einnig byggingariðnað og sölu og þjónustu. Yfirgnæfandi fjöldi þeirra sem velja heilbrigðisgreina tengist líklega einnig mikilli þörf fyrir starfsfólk í heilbrigðisgeiranum, segir Camilla Alfsen.

Staðfesting á námi

Alfsen segir að í dag hafi 104 staðfestingar verið gefnar út að loknu FOV-námskeiðinu og 738 í framhaldsskólanámi fyrir fullorðna (VOV). Stofnun háskóla- og færniþróunar mun einbeita sér að því að gera námskeiðið í FOV betur þekkt í framtíðinni. Þegar kemur að FOV er raunfærnimat í boði í öllum 357 sveitarfélögum landsins og líklega eru margir sem vilja sækja námskeiðið.

Símat

Pernille Flatner Ask, dósent kennir við Fræðslumiðstöð fullorðinna í Porsgrunn. Hún er umsjónarkennari í undirbúningsnámi fyrir fullorðna og kennir 4 áfanga í náttúrufræði, 3 áfanga í ensku og 1 áfanga í norsku. Hún framkvæmir ekki mat á raunfærni heldur leggur áherslu á að vita eins mikið og mögulegt er um slíkt mat.

Pernille Flatner
Pernille Flatner Ask hefur lokið námskeiðinu í mati á raunfærni fyrir undirbúningsnám. Henni finnst það gagnlegt og vekur áhuga hennar á að læra meira um efnið.

– Sem fagkennari met ég stöðugt hvort nemendur hafi staðist áfangann og geti haldið áfram í næsta áfanga eða námsgrein. Þetta er símat með prófum, fagþemum, umræðum í bekkjum og dæmum, segir Pernille Flatner Ask.

– Hversu mikinn tíma fær nemandinn í hverri einingu?

– Það er einstaklingsbundið. Sumir fara hratt í gegnum þetta og halda áfram í næsta áfanga, en aðrir geta tekið lengri tíma. Þetta tengist oft því hve langa skólagöngu einstaklingurinn hefur að baki, segir Ask. Hún vísar í lista Stofnunar háskóla- og færniþróunar yfir viðmið fyrir að hafa náð markmiðum. Það eru góð viðmið að styðjast við.

Gagnlegt námskeið – veitir áhuga á áframhaldi

Pernille Ask hefur lokið námskeiði um raunfærnimat fyrir undirbúningsnám ásamt samstarfsmönnum sínum. Þau fóru yfir námskeiðið saman og ræddu íhugunarverkefnin.

– Þetta var gagnlegt námskeið sem gaf aukinn skilning á aðferðinni og rammanum sem gildir. Og það veitti áhuga á áframhaldi! Ef ég ætti að byrja sem fagmaður í mati á raunfærni myndi ég líklega taka gráðu, en sem inngangur var þetta námskeið mjög gott, segir Ask. Boðið er upp á nám í mati á raunfærni sem hlutastarf með 15 einingum við Borgarháskólann í Osló, OsloMet.

Ókeypis námskeið

Námskeiðin í mati á raunfærni hjá Stofnun háskóla- og færniþróunar eru ókeypis og opin öllum, hvort sem þú vilt ljúka námskeiðinu og fá staðfestingu á náminu eða bara horfa á sem gestur. Námskeiðin eru á vefsíðu Stofnunar háskóla- og færniþróunar og eru aðgengileg öllum. Hafir þú lokið námskeiðinu færð þú senda staðfestingu á því.

Hér er hægt að nálgast námskeiðið á norsku

Gildi fyrir einstaklinginn – og fyrir samfélagið

Þessi yfirlýsing dregur saman FOV-námskeiðið:

„Sem fagmaður í mati á raunfærni stuðlar þú að því að fullorðnir fái menntun sem er sniðin að þörfum þeirra. Þessi vinna skiptir máli fyrir einstaklinginn og hefur um leið mikið gildi fyrir samfélagið.“

Undirbúningsfræðsla fyrir fullorðna (FOV) kemur í stað grunnskólanáms fyrir fullorðna. Námskrár fyrir FOV innihalda efni sem er sniðið að menntunarþörfum fullorðinna og hafa annað efni en námskrár fyrir ungt fólk. Að ljúka grunnskólanámi, eða að ljúka FOV, er skilyrði fyrir því að hefja framhaldsskólanám fyrir fullorðna (VOV).

Skilgreiningar:

Raunfærni er öll sú hæfni sem einstaklingur hefur aflað sér með formlegu, óformlegu eða formlausu námi. Það er öll sú þekking og færni sem einstaklingur hefur aflað sér í gegnum menntun, launaða eða ólaunaða vinnu, starf með frjálsum félagasamtökum, frístundastarf eða á annan hátt.

Raunfærnimat er mat á hæfni einstaklings miðað við ákveðin viðmið. Matið getur leitt til styttingu náms.

Krækja í norræna gæðavitann fyrir mat á raunfærni

Nyeste artikler fra NLL

Rosie Alexander

16/03/2026

Grønland

4 min.

Små samfund har nogle særlige udfordringer, når det kommer til unge menneskers vej ind i uddannelse og job. Men de har også nogle unikke muligheder, siger Rosie Alexander, der forsker i karrierelæring i små samfund.

Finska flaggor som vajar i vinden mot en blå himmel med moln.

13/03/2026

Finland

6 min.

By mid-October 2025, more than 2,600 skills badges have been registered in the Finnish national database called Koski. The purpose of the badges is to recognise informal and non-formal learning in areas such as communication, digital security and everyday finances. An increasing number of organisations in non-formal adult education are now starting to put the badge system to the test.

Gruppefoto av elever i verksted ved FÍV skole på Island, foran motor- og maskindeler og teknisk utstyr.

09/03/2026

Island

7 min.

I Island utdeles et antall ærespriser hvert år for fremragende aktiviteter innenfor skolesamfunnet. Det dekker alle skoletrinn, fra barnehager til universiteter. Det er landes president, Halla Tómasdóttir, som utdeler prisene i Bessastaðir, presidentens offisielle bosted. Hele landet kan fölge med utdelingen på TVen.

Share This