– Þið sem þekkið til, grípið þetta tækifæri til samstarfs strax. Verkefnið er mikilvægara en nokkru sinni vegna skautunar og vaxandi vantrausts ungmenna á samfélagið.
Varalögþingsformaðurinn og mennta- og menningarmálaráðherrann Annika Hambrudd beindi áskoruninni til þátttakenda á málþinginu þegar Álandseyingar voru gestgjafar fyrsta fundar verkefnisins.
Næstu þrjú árin munu Álandseyingar, ásamt Færeyingum og Grænlendingum – undir merkjum NLL – vinna að aukinni þekkingu, samræmingu og þátttöku ungs fólks sem er jaðarsett. Hugtakið NEET (Not in Education, Employment or Training) nær yfir ungt fólk á aldrinum 15–29 ára sem er ekki er í vinnu, námi eða starfsþjálfun.
Norrænt samstarf um símenntun (NLL) leggur áherslu á fjögur stefnumótandi svið á árunum 2025-2027 eitt af þeim málefni er varða NEET hópinn.

Mikill munur á milli aðildarþjóðanna
Á málþinginu í Maríuhöfn þann 25. september komu saman um 30 manns frá ýmsum sviðum samfélagsins á Álandi. Á staðnum í stjórnsýsluhúsinu voru meðal annars fulltrúar atvinnu- og menntageirans, stjórnvöldum, frjálsra félagasamtaka og stjórnmála.
Bo Nygård, sérfræðingur hjá menntamálaskrifstofunni og tengiliður Álendinga í NLL, hóf dagsskrána með því að lýsa hvernig norræna samstarfið tók á sig mynd: – Í Færeyjum liggja ekki fyrir tölur um fjölda þeirra sem tilheyra hópnum á meðan Grænland stendur frammi fyrir miklum áskorunum vegna hás hlutfalls ungs fólks í NEET hópnum og erfiðleikum við að bjóða upp á stuðning. Augljóst varð að þörf væri á að skilja bæði það sem væri líkt og ólíkt og að læra hvert af öðru.
Tölfræði sýnir að staðan á Álandseyjum er frábrugðin öðrum Norðurlöndum
Tölfræðingurinn Jonas Karlsson sýndi fram á að hlutfall þeirra sem tilheyra NEET hópnum á Álandseyjum er hærra en bæði í Finnlandi og Svíþjóð. Ungt fólk á aldrinum 25–29 ára er mest krefjandi hópurinn. Samkvæmt nýjustu tölfræði er hlutfall NEET-fólks á Álandseyjum í alþjóðlegum samanburði 15,8 prósent, samanborið við 12 prósent í Finnlandi og aðeins 6,7 prósent í Svíþjóð.
Bo Nygård bendir á að þetta sé hópur sem samfélagið megi ekki glata:
– NEET-fólk er ekki aðeins félagsleg og efnahagsleg byrði. Heldur snýst þetta fyrst og fremst um persónulegan harmleik fyrir hvern og einn ungan einstakling sem á á hættu að verða jaðarsettur.
Hann segir einnig að þeir sem vinna með NEET-fólki á Álandseyjum séu meðvitaðir um að enn er fjöldi ungs fólks sem tölfræðin nær ekki yfir. Á Álandseyjum skortir nútímaleg æskulýðslög og í dag er engin lagastoð fyrir úrræðum á vettvangi. Engin ber heldur skýra ábyrgð á virkni fyrir markhópinn.
Við þurfum að færa fókusinn
Anna Karlsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, hélt fyrirlestur og varaði við vaxandi gjá á milli samfélagshópa.
– Þrátt fyrir viðleitni okkar til að tryggja jöfn og aðgengileg menntakerfi á Norðurlöndunum, þá leitar þróunin í reynd oft í öfuga átt. Ein ástæðan getur verið lokun skóla í dreifbýlinu, aukin andleg vanlíðan eða að skólar hafi misst sjónar á mikilvægi persónulegs þroska vegna áherslu á að koma á móts við markaðsöflin.
Annika Hambrudd, menntamálaráðherra, vildi sjá breytingu á áherslum.
– Mikil áhersla hefur verið lögð á virknistefnu, en ég er talsmaður inngildingar. Það er eitthvað sem við þurfum að vinna meira að. Það er að fólk finni tækifæri til inngildingar, til þess að það geti farið út í vinnulífið.

Hvaða árangri er áætlað að verkefnið muni skila?
Antra Carlsen, framkvæmdastjóri NLL, leggur áherslu á eitt:
– Það sem er sérstaklega mikilvægt er að norrænar aðgerðir tengist þörfum og áskorunum á landsvísu og á svæðisbundnum vettvangi. Þetta er forsenda þess að starfsemin komi að gagni og skili árangri.
Hún nefnir nokkur atriði sem vonast er til að náist með verkefninu. Markmiðið er að skapa betra samhengi og nánara samstarf milli aðila sem vinna með ungu fólki í NEET hópum í viðkomandi löndum. Jafnframt að öðlast aukna þekkingu á markhópnum: Hver eru þau? Hvað vilja þau?
– Við munum einnig vinna að því að varpa ljósi á góð dæmi og bjóða upp á tækifæri fyrir þá sem taka ákvarðanir á Álandseyjum, Grænlandi og Færeyjum til að mynda tengslanet með fundi í hverju „landi“ næstu þrjú árin.
Bo Nygård nefnir einnig mikilvægt markmið um að fækka ungu fólki í NEET hópi á Álandseyjum. Fundurinn í Maríuhöfn var aðeins fyrsta skrefið í langtíma- og margra ára átaki. Áður en deginum lauk höfðu sjö manns skráð áhuga á þátttöku í viðmiðunarhópnum, en enn eru pláss fyrir fleiri.
Um ferlið á Álandseyjum
- Staðbundinn viðmiðunarhópur verður myndaður á Álandseyjum í haust og honum verður falið það hlutverk að veita innsýn í hvernig þróa eigi verkefnið, aðallega staðbundið.
- Markmiðið er að fá fulltrúa frá að minnsta kosti grunnskóla og framhaldsskóla, alþýðufræðslu, háskóla, félagsþjónustu sveitarfélags, atvinnulífinu, þriðja geiranum og landsstjórn Álandseyja.
- Vefráðstefna er fyrirhuguð fyrir öll þrjú aðildarlöndin í byrjun desember (með fyrirvara um tímasetningu).
- Á árunum 2026-2027 verða skipulagðir fundir til að þróa færni og miðla reynslu.
- NLL fjármagnar fræðimann (um það bil 3 mánuði) sem aðstoðar „löndin“ þrjú sem taka þátt í verkefninu.



